Petrína í kjólunum

Petrína vinkona mín var svo elskuleg að máta fyrir mig kjólana.

IMG_0010  IMG_0012

IMG_0014  IMG_0015

 


Meira af Íris

  1114-butter1_fa  1114-butter3_fa

1114-butter4_fa  1114-butter5_fa

1114-butter6_fa
Hér er kjóllinn missíður að neðan og úr öðru efni.

Íris í sparifötunum

Sælar stelpur.  Ég ætla ekki að reyna að telja póstana sem ég er búin að fá í dag.  En ég er að fá mikið af póstum þar sem konur vilja fá snið/teikningar af kjólnum Íris og það er bara flott og ekkert mál.  Aðrar eru að biðja mig um að sauma hann fyrir sig en það ætla ég ekki að gera.  Þið getið þetta sjálfar.  Þetta er einn saumur, já, bara einn saumur.  Ætli það taki ekki svona 30 mín. að sníða og sauma þennan kjól.  Þetta geta allir gert.

Það sem ég kalla Íris í sparifötunum er mjög svipað og Íris kjóllinn,  nema Íris er úr jersey en Íris í sparifötunum er meira úr "fínna" efni.  Í þeim sem ég saumaði er ég með eins og áður segir, kínaefni.  Á vef Lín/Föndru http://www.fondra.is/lin/Taft.html má sjá efni sem heitir Claudia satín,  þetta efni held ég að sé frábært í kjól eins og Íris í spariförunum. 

Það gildir það sama um pilsið og í hinum kjólnum, það getur verið á marga vegu.  Síðan fáið þið stroff sem þið hafið svolítið breitt.  Stroffið er hægt að hafa í mittinu (sjá kjól á gólfi) eða yfir brjóstunum.  Böndin hef ég um 30 cm breið og nokkuð löng, þau er ég síðan að nota eins og í hinum kjólnum þ.e. binda þau allavega.

Ég kem vonandi með myndir fljótlega af einhverri í kjólnum.

IMG_0017-1

Peysusnið

Í morgun voru margir póstar þar sem verið var að spyrja um hettupeysuna sem ég er að sauma. 

Ég er með venjulegt peysusið,  ég sníð peysuna en síðan klippi ég framstykkið í sundur og sníð eftir efrihlutanum úr öðru efni sem ég ætla að hafa á brjóstinu, síðan sauma ég þessi stykki aftur á neðri hlutann á bolnum.  Þá er komið að hettunni en eins og ég hef hana þá er hún mjög auðveld.  Ég fóðra hana með sama efni og ég hef á brjóstinu. 

Hér er ég með gott peysusnið (D) sem gott er að nota, einnig er í færslunni hér að neðan peysusnið með hettu, þetta er mjög falleg peysa.  Ég hef ekki verið að nota þessa hettu.  Ég skal teikna þær hettur sem ég hef verið að nota og setja hér inn í þessa færslu í dag.

5025ark


ONION sniðin

Jæja þá eru það sniðin sem ég nota þegar ég nota snið.  Ég er semsagt að nota grunn snið og þau hef ég fengið hjá Föndru en ég held að Vouge sé einnig með þau.  Ef við tökum til dæmis hettupeysuna þá er ég að nota þetta snið að hluta og breyti því eftir mínu höfði, ég hef t.d ekki notað þessa hettu heldur notaði ég hettu sem ég sá á peysu ég teiknaði hana bara því mér fannst hún flottari.

1016ark

 

 

 

0005arkHér að ofan má sjá leggings sniðið sem ég nota mikið.

 

6009arkHér er svo peysu snið sem er frábært.

 

Önnur sniðug snið sem hægt er að nota sem grunnsnið.

3023ark

það er t.d. ekkert málað nota þetta pils snið sem grunn af Írisi.

 

5003ark  0006ark

Þessi tvo eru flott í allavega boli.  Það eru sem sagt endalausir möguleikarnir í þessum sniðum

 


Teikningar af Írisi

Jæja stelpur þá er ég búin að taka saman upplýsingar um kjólinn Írisi.  Þær sem hafa áhuga sendið mér tölvupóst á www.breidavik@patro.is

8765

Hér að ofan er kjóllinn Íris síður og þessi fjólublái er hafður missíður.

page15_description_8__1

Á myndunum hér að ofan má sjá hvernig hægt er að breyta kjólnum enn meira með að nota svona hring sem hafður er um hálsinn.  Þetta er trúlega ekki alveg sami kjóllinn og Íris en engu síður sniðug hugmynd. 

 Efnið hef ég verið að kaupa í Föndru.   Núna er ég einnig farin að kaupa þau í Vouge en þar eru einnig til góð efni í þessa kjóla.


Afrakstur dagsins

 

Þegar ég vaknaði í morgun þá var ég ákveðin í því að sauma ekkert í dag.  En Ingþór var að koma að sunnan og kom hann með efni með fyrir mig.   Ég stóðst því ekki freistinguna og fór að sauma.  Ég byrjaði  á að sauma hettupeysu og leggings fyrir vinkonu mína hana Sigþrúði.  Sigþrúður Sveinsdóttir og Ásta Guðjónsdóttir eru mikið hjá mér á daginn eftir skóla.

Hettupeysan er úr jogging efni og á brjóstinu og inn í hettunni er ég með mynstrað jersey.  Leggings buxurnar eru úr weet-look.

Eftir þetta fór ég að leika mér með að sauma kjóla.  Ég set hér myndir af þeim en ég tek það fram að það er ekki að marka að sjá þá svona á herðatré.  Þegar ég hef fengið einhvern til að máta þá set ég inn nýjar myndir.

Svarti kjóllinn er úr kína-efni og ég hef stroff á honum.  Það er bæði  hægt að nota það um mittið eins og ég er að reyna að sýna þar sem hann er á gólfinu.  Þá er hægt að hafa stroffið um brjóstið.  Böndin sem eru um axlirnar er ég að hugsa um að hafa eins og á „Írisi“  (ekki alveg búin) 

Rauði kjóllin er úr jersey en um brjóstið er ég með pallíettuefni.

Ef ég fæ einhverjar til að máta þá set ég inn myndir.  Annars fæ ég myndir þegar Maggý Hjördís er komin með hann.

IMG_0002   IMG_0017-1

IMG_0004  IMG_0006

IMG_0015-1  IMG_0006-1

 


Hver á þessa sætu stelpu???

Jæja þá er ég búin að sauma einn kjól þar sem ég er að nota mynstrað efni.  Mér persónulega finnst þetta virkilega fallegt.  Ekki var það verra hvað fyrisætan var ánægð sjálf með kjólinn.  Fyrirsæta að þessu sinni er Bjarnveig Ásta Guðjónsdóttir frá Hænuvík. 

IMG_0002  IMG_0013

IMG_0018  IMG_0008

IMG_0021  IMG_0025

IMG_0036

Ný peysa

Ég lofaði að setja inn myndir af því sem ég er að gera.  Hér eru peysur sem ég er að sauma á dóttur mína hana Maggý Hjördísi.  Maggý Hjördís er í VMA og oft erfitt að hafa hana svona langt frá okkur.  Mér finnst gaman að senda henni pakka af og til og þá er oft eitthvað í honum eins og þessar tvær peysur sem voru í síðasta pakka.

Maggý Hjördís ELSKAR föt.  Hún ætlar að senda mér myndir í kvöld af henni í peysunum.

IMG_0001   IMG_0005

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

327 dagar til jóla

Höfundur

Birna Mjöll Atladóttir
Birna Mjöll Atladóttir

Birna Mjöll
Bóndi og hótelstýra með meiru

breidavik@patro.is

www.breidavik.is

 

Um bloggið

Birna Mjöll Atladóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband