Ég má til með að segja ykkur

Já ég má til með að segja ykkur frá skemmtilegum pósti sem ég hef verið að fá.

Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera með tvö netföng í mörg ár, annað er www.breidavik.is og hitt er breidavik.net.  síðan skeði það fyrir tveimur árum að breidavik.net netfanginu var stolið frá mér.  Það átti sér stað þannig að sá sem hélt utanum síðuna mína hafði ekki borgað síðustu greiðslu.  Það var lyfjafyrirtæki ú í löndum sem stal þessu.  Ég fékk mann til að hjálpa mér til að ná því til baka og þeir samþykktu það með því að ég borgaði stóra fúlgu fyrir það.  Ég hélt nú ekki þeir gætu þá bara hirt það.  Þetta er svo sem ekki í frásögu færandi nema vegna þess að nú er ég farin að fá póst sem á að berast til þeirra, pósturinn er frá ánægðum viðskiptavinum,  margir  eru ánægði með það að þeir eru að grennast þá er það eitt og annað sem þeirra kúnnar eru ánægðir með.  Flestir kúnnarnir eru þó ánægðir með hvað „félagi“ þeirra haldi góðri reisn, nú síðan eru margir ánægðir með hvað stærðarhlutföllin hafa breyst.  Það var gaman í fyrstu að lesa þennan póst en ég fer nú að verða leið á að lesa um limastærð og góða reisn.   Ég læt hér að lokum fylgja bréf frá einum ánægðum kúnna.

 I do not know what you guys put in these pills, and frankly, I do not care - because it worked a miracle for me, and turned my life around. I am no longer insecure and depressed, and I do not get all anxious. Max Gentleman helped me put on 3 inches, and for that I will always be grateful.      FREDDY SCHULZ

jkg
 
viagra-for-smokers


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Þetta er nú bara frábært, nei frænka ég myndi sko bara leyfa þeim að eiga síðuna.  Alltaf ánægjulegt að geta hjálpað og að fólk haldi reisn sinni. 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 29.3.2009 kl. 15:30

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bara skondið, láttu þa bara hirða þetta.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.3.2009 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

236 dagar til jóla

Höfundur

Birna Mjöll Atladóttir
Birna Mjöll Atladóttir

Birna Mjöll
Bóndi og hótelstýra með meiru

breidavik@patro.is

www.breidavik.is

 

Um bloggið

Birna Mjöll Atladóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 217067

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband