Þáttur Evu Maríu í kvöld

Ég var að horfa á þátt Evu Maríu í sjónvarpinu.  Ég verð að viðurkenna að þar sem ég hef ekki verið með sjónvarp í mörg ár þá hef ég ekki séð marga þættina hennar.  Ég hef þó séð nokkra þegar ég er á Patró.  ´

Mér finnst Eva María auðvitað frábær sjónvarpskona og þeir þættir sem ég hef séð hafa verið mjög góðir.  Þegar ég settist niður við sjónvarpið í kvöld og hún kynnti gest sinn Ragnar Kjartansson.  Í kynningunni segir meðal annars:

"Ragnar Kjartansson er einn af eftirtektarverðustu myndlistarmönnum okkar yngri kynslóð.

Hann verður fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. Ragnar hefur ekki aðeins stundað myndlist heldur einnig leikið í leikhúsi og verið poppstjarna af lífi og sál."

Vá.......ekki fyrir minn smekk hugsaði ég en þar sem ég sat eins og klessa upp í sófa og heklaði þá nennti ég ekki að skipta um rás og horfði þess vegna á Evu Maríu ræða við Rangar, og það verð ég að segja að þetta er besti þáttur hennar að mínu mati til þessa.  Ekki er það vegna þess að Eva hafi verið betri en vanalega, því það er ekki hægt, hún getur ekki batnað.  Heldur var það maðurinn sem hún ræddi við, hann var yndislegur, svo einlægur, broshýr og kátur.  Hann geislaði af gleði, var bara fallegur drengur eins og hún dóttir mín hefði sagt.

Eva María og Ragnar Kjartansson takk fyrir kvöldið.

76

image RAGNAR_KJARTANS_2_362135917_std

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

innlitskvitt

Aprílrós, 6.10.2008 kl. 07:46

2 identicon

Ég kann nú ekki að meta þessa list. Líkar betur verk eftir afa hans og nafna

Bárður Snæfellsás, Arnarstapi by Short Scouser.

Bárður Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson

Guðný (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

219 dagar til jóla

Höfundur

Birna Mjöll Atladóttir
Birna Mjöll Atladóttir

Birna Mjöll
Bóndi og hótelstýra með meiru

breidavik@patro.is

www.breidavik.is

 

Um bloggið

Birna Mjöll Atladóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband